fimmtudagur, nóvember 22, 2007

Erum að setja saman ritgerð um hvernig samskiptin við Alumni og Alumna ætti að vera, með tilliti tið tilætlaðra áhrifa.



Eftir það er ég kominn í jólafrí. Jibbý

laugardagur, nóvember 17, 2007

Bubbi í gær



Fórum svo í nokkra drykki með nágrönnunum, Sigríði og íslendingum. Hitti 2 miðaldra menn sem sögðust hafa búið hér í áratugi. Þeir voru blindfullir og urðu ofsakátir þegar ég sagðist ætla að verða góð manneskja, hafa vafalaust fengið nokkur svör um "ríkir" og orðið skandinavískt reiðir út í aðra unga Íslendinga.

fimmtudagur, nóvember 15, 2007

HVAÐ ER ÞETTA?

Mér finnst að utanríkisráðuneytið ætti að senda fyrirspurn varðandi þetta mál. Við höfum jú enga kröfu á að aðrir hafi sömu hugmyndir um mannréttindi og við en fyrr má nú vera að fórnarlömbum sé refsað.

Hjólaði hratt í dag í skólann, enda vaknaði ég 20 mín áður en ég átti að mæta. Vanalega er ég korter en var fljótari í dag.

En það skipti ekki máli því Doktorinn mætti ekki í tíma. ÉG VAR ALVEG BRJÁLAÐUR.

þriðjudagur, nóvember 13, 2007

Google Androit

Mér lýst vel á þetta meinta fyrirbæri, sem breytir farsímanum þínum í tölvu, reyndar lítið annað en hugmynd sem stendur.

En ég held að þetta skref Google sé í rétta átt. Hver er ekki orðinn þreyttur á 386 stýrikerfum farsímanna okkar? Hver verður ekki brjálaður þegar hann tengir farsímann sinn við tölvuna og sér hann er kominn aftur í Windows95? Að ég tali nú ekki um misvitra valmynd.

Hugsaðu þér ef þú gætir sótt þér skype og msn á farsímann þinn? hmmm hvað með netkostnað? Kannski verður farsíminn ekki að tölvu fyrr en netnotkun verður orðin ókeypis.

Svo kannski maður hætti bara að hugsa um þetta í bili.

Það verður gaman að kíkja á kosninganóttina í kvöld. DR er að auglýsa hvar flokkarnir eru að bjóða uppá bjór - ég er í fríi á morgun.

föstudagur, nóvember 09, 2007

Hið versta hefur gerst. Þetta Nokia drasl virkar ekki eins vel og ég keypti það. Tónlistin spilast en ekki í sjálfum mediaplayernum og bara eitt lag í einu. Hvað getur maður gert? Ekki mæti ég með tölvuna og held sýnikennslu á vitleysu símans fyrir misáhugasama verslunarstarfsmenn? Fyrir utan að ég er búinn að brjóta skjáinn, missti hann um morgunstund.

Eiginlega er mér farið að vera sama, því ég er kominn á fyrsta glas (fékk reyndar bara hvítvín ekki bjór) og verð bráðum kenndur.

Það er jú tilgangurinn með þessu öllu saman - lifa.

Er búinn að eyða talsverðum tíma að fá alla seldu virknina til að virka í Nokia símanum mínum. Til dæmis keypti ég 2gb kort til að hlusta á tónlist en einhverra hluta vegna fannst mér eins og Nokia menn hafi ákveðið að taka iPod ruglið sér til fyrirmyndar. Nota semsagt "nokkurnvegin iTunes" til að vinna með tónlistina.



Ég varð fljótt þreyttur á því og copy-a skrárnar núna beint í tónlistarmöppuna. Sem iPod leyfir ekki. Svo eftir nokkrar mínútur kemst ég að því hvort þetta trix virkar...

Var að gera kynningu í dag á RFID, sem er útvarpsbylgjuörgjörvi sem virkar svipað og strikamerki nema það þarf ekki að skanna í beinni sjónlínu.

Áhugaverð tækni.

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Þvílíkt og annað eins, SVÍNAÐ á mann. Heill bíll svínaði á mig, keyrði uppá hjólaveginn og ég þurfti að beita frjálslegri aðferð til að stoppa.

Lenti þá í því að setja niður löpp svo ég gæti sveigt meðan ég bremsaði. Þá rifnaði sólinn á Ecco skónum.



Sem þýðir leiðangur í Fields.

mánudagur, nóvember 05, 2007

Þegar maður var lítill gat maður alltaf sett loft í dekkið á BMX hjólinu á bensínstöðvinni, maður þurfti bara að fara inn og sækja ventil.

Ég lenti í því hérna úti að þurfa á vendli að halda, það fór nefnilega að leka loft úr afturdekkinu mínu um daginn. Í stað þess að fara á Q8, Statoil eða Total fara Danirnir í hjólabúðirnar. Því fyrir utan allar hjólabúðir er slanga.

En hvernig segir maður Ventill á dönsku? Viti menn það er Ventil:)

Annars er ég núna búinn að pumpa núna 2svar í dekkið, á jafnmörgum dögum. Það er greinilega gat einhversstaðar. Kannski maður snú hjólinu á hvolf og "geri við"? Rifja upp gamla takta.

Er að læra um Bransasamskipti / Corporate Bullshit.

Ég opnaði youtube reikning um daginn því ég ætlaði að setja "Ferðina" inn en hún er því miður ekki lengur á tölvunni minni. Svo ég setti inn annað Video af golfferð í Grafarholtið.



J-dagurinn var á fös ég kíkti aðeins með Sabba og Binna niðrí bæ, jólabjórinn frá Tuborg er dökkur ale.

sunnudagur, nóvember 04, 2007

"Já sæll Já fínt skiluru, Ég er farinn að laxera af þessu drasli maður"

Maður er búinn að vera að ræða þessa Næturvakt útum allt. Meðan maður smíðar geimflaugar og tana sig í drasl.

Maður bíður bara eftir Pappakössum og Pökkum.

Ég er á leiðinni.