Ég tók persónuleikapróf á netinu og viti menn ... ég er
Your results:
You are Iron Man
| Inventor. Businessman. Genius. |
Innsti koppur á 2. júní
Ég tók persónuleikapróf á netinu og viti menn ... ég er
Your results:
You are Iron Man
| Inventor. Businessman. Genius. |
Skrifað af Jon Minn klukkan 22:44 |
Original of the Species
Annars var ég að velta fyrir mér af hverju engar bensínstöðvar eru á leiðinni niðrí bæ? Það eru bara bensínstöðvar á leiðinni í úthverfin? Why is that! By the way "Original of the Species". Já ég til dæmis tek oftast bensín á morgnana á leiðinni í vinnuna en þá þarf ég að taka bensín á einhverjum gömlum kofum eins og Esso í Ártúnsbrekku... skrýtið...
Every where you go you shout it
You don´t have to be shy about it
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:38 |
Borgin mín
Mjög góðir þættir á RÚV, sest alltaf niður með osta og crackers þegar þeir eru á dagskrá. Núna áðan var Kristinn R. Ólafsson að sýna okkur Madríd. Mjög falleg borg, með fjölda halla, garða og torga sem konungarnir hafa reist sér og öðrum til afþreyingar. Sérstaklega fannst mér áhugaverð fullyrðingin um að Stallari konungs hefði reist kóngi garð allstóran sérstaklega svo að hann sjálfur fengi frið til að ráða ríki sínu. Þá fór ég að pæla aðeins í einræði og erfðaréttinum.
Ef maður nokkur, kóngur, lætur glepjast af gulli og grænum skógum sér til afþreyingar en sleppir því að huga að hagsmunum ríkisins hversu hæfur er hann til að stjórna því? Af hverju er þá ekki langheppilegast að leyfa næstráðanda að taka við? Jafnvel fá úrskurð almúgans um það hvort hann sé ekki hæfari en einhver annar?
Ég sé fyrir mér að hægt verði að halda sérstakar kosningar þar sem menn sem meira mega sín (þeir sem hafa eitthvað almennilegt til málanna að leggja) lýsa yfir, í leyni, hverjum þeir treysta best.
En þá er það spurning, af hverju bara menn sem meira mega sín? Leyfum líka minniháttar lágstéttarliði að kjósa í leyni, bjóðum því með líka.
Hvað um konur? Sumar konur ráða meira en karlar sem meira mega sín, aðrar konur ráða engu og hafa oftast ekkert málefnalegt til málanna að leggja. Það á reyndar við um minniháttar karlmenn, svo leyfum öllum konum að kjósa.
En ekki börnum? Nei, þau geta ekki gert upp hug sinn án beinna tengsla við sjónarmið foreldra sinna svo þau verða að vera ákveðið gömul áður en þau geta kosið! Annars sæjum við svo mikil áhrif frá útungunarvélum á stjórnunarhætti ríkisins. Spurning að negla niður aldurstakmark, t.d. 18 ára, þá er fólk orðið að sjálfstæðum manneskjum og oftast flutt að heiman og farið að stjórna sínu lífi óháð ættartengslum, svona í leynikosningum allavega.
Kjósum við um hvert einasta smáatriði? Nei, það er því miður ekki hægt, við myndum ekki gera neitt annað en að stjórna og kjósa í leyni. Svo við skulum hafa sérstakt fólk sem við kjósum til að ráða smáatriðunum. Við myndum sjálf ráða öllum meiriháttar málum í leynilegum kosningum, að því gefnu að sérstaka fólkið geti ekki komist að niðurstöðu eða vilji fá álit almennings.
Ok, þá er þetta komið? Nei, hver á að hafa eftirlit með því að þessir stallarar geri rétt? Jú, höfum gáfað fólk til að skera úr um öll álitaefni, (við skulum mæla gáfur eftir sérstökum prófum sem stallararnir útbúa).
Við veljum þá stallara í beinum kostningum. Þeir stjórna svo smáatriðnum fyrir okkur á meðan við verslum, elskum og slöppum af (tæmandi talning).
En hey... hvað eiga kóngarnir þá að gera? Eigum við að myrða þá? Já, við skulum gera það, þeir eru hvort eð er leifar af hnefaréttinum sem löngu er aflagður, er hann það ekki annars?
Höfum kóngana aðeins lengur inni, þangað til við áttum okkur á því hvort við viljum hafa þá eða ekki.
Þá er bara eitt eftir, hver á að búa til garðana, hallirnar og torgin? Varla stallararnir? Það verður að vera einhver sem er ríkur, einhver sem hefur hag af því að láta fólki líða vel. Kannski fræga fína fólkið? Eða kannski einhver sem fær stöðugar tekjur, nú fær kóngur bara það sem "við ríkið (stallararnir)" ákveðum. Svo hann á ekki peninga til að byggja stórhýsi og mannvirki til afslöppunar.
Kannski æðsti stallari? Nei, það væri óráð, þá yrðu kosningarnar bara vinsældarkosningar en ekki málefnalegur baráttuvöllur skoðanaskipta í uppbyggingu ríkisins.
Höldum bara einræðinu - Lengi lifi kóngurinn.
Skrifað af Jon Minn klukkan 15:59 |
Hæfileikinn til að breytast og tileinka sér nýjungar á nýtilegan hátt er það sem aðskilur Sigurvegarana frá hvor öðrum
Meiraðsegja kominn með MySpace.
Ég setti þetta á fót í þessari viðleitni - og til að vera töffaður. Nú hljóta stelpurnar að fara í tvöfalda röð.
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:51 |
Fór í gær í ræktina, ég hafði ekki farið í nokkrar vikur. Í WC er bílastæðavandamál, eins og annars staðar en sérstaklega mikil í WC. Ástæðan er að sá sem teiknaði bílastæðið er hálviti.
Ég er alltaf frekar hissa þegar augað á mér opnar hliðið, man ég bað sérstaklega um tímabundna áskrift á sínum tíma. En auðvitað rúllar þetta bara og rúllar á kortinu.
Fór á brettið, skíðabrettið - gleymdi reyndar höfuðheyrnartólum svo ég gat ekki hlustað á útför Georgs Best.
Eftir um hálftíma glápi á líkfylgdina fór ég stuttan hring um svæðið - þekkti ekki haus en náði að lyfta mér nokkrum sinnum svo ég hitnaði en svitnaði ekki. Svo horfði ég meira á sjónvarpið og aaaa gufa...
Af hverju étur maður mjólkurvöruna Boost? Ég fékk mér ávaxtasafa, ógeðslega súr.
Svo labbaði ég út... vissi ég hafði svindlað - þessi rækt taldist ekki með. Ég hef enn ekki farið í ræktina í nokkrar vikur.
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:23 |
Björgvin viltu hringja í mig? 8566712
Andri Gjaldkeri - ég kem til þín í hádeginu á morgun, þarf að ná í diskinn.
Muna að setja jakkafötin í hreinsun, athuga að fjárfesta í nýjum fötum. Nota bene Jólafötin verða ekki athuguð fyrr en rétt fyrir jól.
Alarm á klippinguna þann 13.
muna að skoða blogg hjá vinum mínum og kommenta á þau
Skrifað af Jon Minn klukkan 22:55 |
Loksins loksins það er komið að því... Jón Minn bloggar snýr aftur - ekki trúa, Treystu. Örninn er lentur..
búið - þetta er allt búið. Farið heim það er ekkert að sjá hérna.
Endir og pasta
Skrifað af Jon Minn klukkan 05:36 |
Takk fyrir afmælisskemmtun.
og allar gjafirnar... tísku ÚR, AA bænin, koníak, rauðvín, hvítvín og bjórglös að gjöf.
Agnar fær 100% fyrir mat og tilbúning, Ágústa 100% fyrir skreytingar og utanumhald. Andri 100% fyrir útréttingar og almennar reddingar. Auðvitað fleiri en þau aðallega fyrir óeigingjarnt framtak.
Litla snjókúlan hefur fengið fastan stað undir vinstri skjánum.
Svo voru svo mikil læti að síminn misfórst og yfirgaf mig ég missti því öll símanúmer úr síma - þannig að ekki furða ykkur á því ef ég hringi ekkert í ykkur næstu daga. Því eins og allir vita er ég mjög duglegur að hringja í fólk og spjalla um dag, veg, veður og pólítík.
vúff... þá er afmælisbloggið búið ég sem kveið svo mikið fyrir hvernig ég myndi blogga þennan myndaratburð, myndir á leiðinni.
Skrifað af Jon Minn klukkan 21:05 |
Sunna á afmæli í dag. Til hamingju með daginn Sunna.
annað Afmæli. Á morgun verður haldið uppá afmæli Jóns Míns... þá verður gaman, eins og Guð sendi mér "Ég er búinn að ákveða að detta í thad í afmælinu thinu. Eins gott að thad sé veglegt".
Ég þakka kærlega fyrir sms sem mér voru send á afmælisdaginn, sem ég nota bene fékk rétt áðan. Þegar einhver sms stífla brast og síminn minn yfirfylltist. Takk fyrir mig.
Svo komst ég að því að póstur sem ég hefi verið að senda út vegna afmælisins hefur ekki komist til skila. Boðskortin hafa ekki borist fólki. Skoðið junk folder.
Backup plan... sms massa sendingar á morgun, ef guð lofar.
Skrifað af Jon Minn klukkan 21:43 |
Fór á djammið í gær. Lenti í slag við mér minni mann. Byrjaði þannig að hann vatt sér uppað mér og sagði að "ég tróð einu sinni yfir þig í körfubolta" Ég sagði að það gæti ekki verið því ég væri jú annálaður körfuboltasnillingur. "Víst maður, þegar þú varst í Njarðvík þá rústaði ég þér, ég var miklu stærri en þú." "Ok" sagði ég og kynnti mig fyrir vinkonu mannsins. Vinur minn hélt áfram að reyna að fá staðfestingu á sögunni "Þú mannst alveg eftir þessu, vilt bara ekki viðurkenna það". Ég reyndi að segja manninum að ég hafi verið í Grindavík en ekki Njarðvík, "gulur er meira minn litur" en það átti ekki vel við litla vininn og fór að monta sig við vini sína að einu sinni hefði hann troðið yfir mig. Nota bene... staðið var í röð at the time (eitthvað sem ég er alfarið á móti en það voru stelpur tengdar þessu svo ég lét mig hafa það). Vinur mannsins spurði mig hvað ég væri stór (jess.. uppáhaldsspurningin mín). En þegar ég sneri mér við til að tala við mitt fólk - kýldi gaurinn í bakið á mér, mjóhrygginn.
Ég sneri mér við og öskraði á dverginn og ýtti honum sem bjó til massa hreyfingu á röðina þar sem óvænt litli maðurinn datt og á æstan mann sem varð brjálaður við litla og þeir fóru að kíta og hálstaka hvorn annann. Þá kom dyravörður og allt fór endanlega í hund og kött. Ákkurat þá komst fólkið mitt inn og ég var togaður inn í dans og dun.
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:09 |