þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Langt blogg

Var að starta annarri geðveiki í viðbót við mitt flókna og hálfpartinn snargeðveika líf. Leiklistarprufur eftir rúmar vikur.

Var að hlusta á Iron Maiden í vinnunni í dag... leyfði öllum að hlusta með mér, í gegnum þartilgerða hátalara. Þegar 134 mínútur voru eftir á media player er ég beðinn um að hætta þessari vitleysu. INGÓ!!! Þá tók við hálftíma þögn, ég var að leita að einhverju sem myndi hæfa okkur báðum. Það fannst ekki og ég fór á fund. Ætla að setja ABBA á á morgun, sjáum hvernig það gengur í flugmanninn. Veit að Ágústa kaupir það.

Litla systir bað um blogg til heiðurs henni. Bað mig um það á spænsku, til að láta mig vita hver hefur valdið. Ég svaraði henni stórkallalega á vestfirsku að ég myndi skrifa óð um hana bráðum, ég hefði skrifað ljóð til hennar fyrir ekki allt svo langa.

ÉG á miða á Eddie Izzard :) liggaliggalá... ÉG er í langbesta pakkanum!!!