Ég óska lesendum og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári um leið og ég þakka fyrir viðskiptin á árinu 2003.
miðvikudagur, desember 31, 2003
Skrifað af Jon Minn klukkan 13:42 |
þriðjudagur, desember 30, 2003
Swindon vann leik í gær og það er frásögu færandi vegna þess langt er síðan það gerðist síðast... 2-1 voru úrslitin og Swindon komið í 12. sæti sem er ekki jafngott og 1. sætið sem við héldum í þrjár fyrstu umferðirnar í fyrra...
Það er ekki nóg að lifa á fornri frægð... nú er kominn tími á aðgerðir ~AÐGERÐIR~ hjá mínum mönnum, The Robbins. Það er nokk ljóst að ég fer á kreik og leik í vor, til að hvetja þá áfram og jafnvel kaupa hlutabréf í liðinu (ég vona þeir séu á markaði) til að geta setið hluthafafundi næstu árin og haft áhrif á menn og málefni í innra starfinu félagsins.
Svo segja má að bjartir tímar séu framundan hjá liðinu, þar sem ég ætla loks að snúa mér að verkferlum sem eiga að lokum eftir að skila Swindon Town í toppbaráttuna.
Ég spái því hér með að árið 2010 muni Swindon Town vinna ensku deildina!
Skrifað af Jon Minn klukkan 03:35 |
mánudagur, desember 29, 2003
Var að hlaupa strætó sprettinn í dag... (því bíllinn byggði sér virki í morgun)... Þegar allt í einu ég stíg niður í holu sem snjórinn var búinn að fela og kolféll með andlitið á kaf í snjóinn og ég lít upp sé strætó renna uppað og ríf mig upp adrenalínið kickar inn og ég næ að klöngrast yfir skaflinn sökum stórra lappa sem mér voru gefnar, næ strætó og allt fór vel... allt.
Skrifað af Jon Minn klukkan 22:48 |
laugardagur, desember 27, 2003
Nú þegar Jólin eru í hámarki er rétt að huga að tómstundum sem ekki innihalda kjötát, jólagos+malt þamb, lestur jólagjafa, spilakvöldssamkomur, DVD áhorf, annað sjónvarpsáhorf, svefns, klósettferða, göngutúra í brakandi jólasnjónum, hljómlistamannahlustun, staraútíloftið tilgangsleysi, samtöl við ættingja um það sem skiptir engu máli, hlægja að veðurfræðingnum sem spáði rauðvíni á jólum, meiri svefns og vöku og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og og snúa sér að því að hafa sig til í afmælið mitt sem haldið verður í dag að Glaumbar í Kvosinni Miðbæ Reykjavíkur stundvíslega klukkan 20:00…
Ég minni á að í boði verður öl að fornum sið… Þeir fyrstu verða fyrstir og þeir síðustu fá ekki neitt…
Skrifað af Jon Minn klukkan 14:48 |
mánudagur, desember 22, 2003
Kæru skyldmenni, vinir, félagar, lesendur, allir sem vita af tilveru minni og allir sem ég þekki...
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!!!
Ég vil minna á síðbúna afmælisveislu sem haldin verður á Glaumbar laugardaginn milli jóla og nýárs. Þar mun verða glaumur, gleði og endalaus hamingja... Ég býst við þér!!!
Skrifað af Jon Minn klukkan 19:02 |
Ákveðið rólyndi hefur færst yfir mig. Jólin eru alveg að koma og ég á bara 2 gjafir eftir, reyndar jólakortin líka en það reddast. Þegar ég hef tíma mun ég taka til á síðunni og fær hljóðskrárnar yfir á aðra síðu. Gera síðuna jólalegri og koma jólakveðjum hingað inn. All in good time, all in good time...
Skrifað af Jon Minn klukkan 12:57 |
sunnudagur, desember 21, 2003
http://www.picturetrail.com/jonminn23 Hérna eru myndirnar frá Hótel KEFLAVÍKur ferðinni http://www.picturetrail.com/jonminn23...
Skrifað af Jon Minn klukkan 17:23 |
laugardagur, desember 20, 2003
föstudagur, desember 19, 2003
Erum komnir á hótelið og hvílíkur munaður við erum komnir í eitthvað. Við vorum óviðbúnir nú er bara að búa til dagskrá... með hraði því kvöldið er komið... annars kemst maður i tölvu á hótelinu og msn og ég nota tækifærið og bolga smá...
VIVA KEF
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:45 |
Annars var keyrt á bílinn minn áðan og stungið af... Reyndar sáu snillingar unglingstrákar hver það var, voru búnir að hringja í lögguna og voru æstir BORGAR AÐ SINNA SKYLDUM SÍNUM en ég róaði þá niður og sagði þeim að þetta dusilmenni mætti eiga sig því skemmdin sem þeir vísuðu til var ekki eftir dusilmennið heldur #svoleiðis frá því ég klessti aftaná bíl hérna fyrir rétt um ári# að þetta yrði aldrei neitt nema vesen.... plús það bíllinn sem klessti á minns var víst nýlegur og dusilmennið tapaði því meiru... og dusilmennið má eiga sinn bónus... það var mín jólagjöf til hálvita þetta árið...
talandi um jólagjafir þá er ég að fara að kaupa fyrir 10800 í KEF svo ég fái gistingu á hótel KEF...
eina nótt........... reyndar hugsaði ég þetta ekki alveg þegar Agnar pantaði fyrir mokkur tvö herbergi í lok nóv... Hvað er maður að spá .... eins og einhver hugsuður að vera í einhverju herbergi útúrdrukkinn í KEF með læti rétt fyrir jól. NeMa en en en en maður nái að redda sér einhverju að gera þarna útánesi...
Svo er málið að hætta að hugsa og bara framkvæma allt sem manni dettur í hug.................. það er hið nýja mottó mittttttsss
Svo er búið að plana ferð á Roskilde Hróaskeldu Hróaskelda tónleikum tónleikar Danmörku Denmark Danmark rétt Kaupmannahöfn hjá. David Bowie verður þarna og ég ætla að vera þarna...
meira til sem planað var á XMAS í gær með SABBA
en nú eru að koma jól og ég mun setja síðuna í jólabúning bráðlega öllum til yndisauka.
Kemuru með?
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:50 |
Minns langar að vera söngvari í alvöru hljómsveit. ég er búinn að sjá það ég er ekkert verri en hver annar.... samanber söngur minn í Idol stjörnuleit, í bílnum mínum og þegar ég þríf mig undir handakrika. ÉG og Brúskur erum komnir með þetta á hreint............
Aðalmálið er bara að semja einhver lög sem eru grípandi og valda hughrifum almennings.................
Svo núna verður lagst í umhugsun úr því maður er kominn í jólafrí og fundinn upp gamall ofnotaður taktur og slengt í heilt lag.... tekið upp í hljóðveri á höfuðborgarsvæðinu o
g eitt enn
FALIFATTI
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:41 |
fimmtudagur, desember 18, 2003
Það er algeng staðreynd að lífeyrisþegar hafi um 40% lægri tekjur en fyrir starfslok. Til að minnka þetta launahrap þarf að leggja fyrir, helst alla ævina.
Ert þú byrjuð/byrjaður að leggja fyrir í Viðbótarlífeyrissparnaðinn?
Ekki það nei... þá skal ég glaður koma honum í gang því fyrir þig. Hringdu bara í mig í síma 695 42 36 og ég renni við hjá þér með pappíra og vola... þú byrjar að græða...
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:19 |
miðvikudagur, desember 17, 2003
Margrét á afmæli í dag - tvítug og eins stúlkukindin - Það er aldeilishvað hún er orðin stór/fullorðin. Man þegar ég sá hana fyrst þá bara blindfullur krakkaandskoti sem var að angra mig. Svo gerðist margt sem varð til þess ég endurskoðaði hugmyndir mínar um þetta grey. Margrét þú ert YNDISLEG!!!!!
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:35 |