Nektarmyndir af Guðmundi Óla..... Þar sem hann strippaði á Kofanum í gærkvöldi
sunnudagur, febrúar 29, 2004
laugardagur, febrúar 28, 2004
Á morgun er dagur sem kemur bara á fjögurra ára fresti... ég ætla að nota hann sérstaklega vel... sérstaklega þar sem síðasti 29. feb var 1996 og þessi dagur því merkilegri en aðrir. Í rauninni eru nokkrir tímar í þennan undarlega dag. Notum hann vel...
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:55 |
Af hverju eru allir séríslensku stafirnir kolvitlausir í headdernum og hliðinni?
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:24 |
Ég fór útúr húsi í gær á nýjum skóm og vel til hafðu eins og góðum strák eins og mér sæmir. Svo fór Minns að dansa og á einum stað við ókunnuga og hafði gaman af þegar allt í einu hoppa ég aðeins of hátt og á röngum stað og KLONG hausinn beint uppí loftið og ég verandi frekar taugaboðshamlaður þá stundina sagði bara „haha ég fékk kúlu!“ og rosagaman. Hausinn á mér er frekar afmyndaður og ef vel er að gáð er smotterís blóðskorpa til að kroppa í við svæðið. Ég hefði tekið mynd af því ef myndavélin mín hefði ekki tekið uppá því að vera batteríislaus. Ég hefði líka tekið mynd af því þegar við Jón rifumst við Björgunarsveitarmanninn Jóhannes um í hvaða átt norður væri, og hvort segurnorður væri ekki á leiðinni suður í Síberíu og væri þess vegna ónothæfur sem mælipunktur. Björgunarsveitarmaðurinn Jóhannes sagði okkur líka að Esjan væri þar sem Skarðsheiðin er og Skarðsheiðin væri þar sem Akrafjallið er og að Akrafjallið væri þar sem Eldborg er, kolvitlaus. Það var líka ansi merkilegt að á leiðinni í útfjólubláa eftirpartýið uppí úthverfinu borgaði enginn almennilega fyrir leigubílinn, nema 40 kall frá mér og einn fimmhundruð kall sem við létum ganga okkar á milli til að hann virkaði sem fjögur stykki. Leigubílsstjórinn hafði ekki undan við að leiðrétta inngang að rökfræði II í okkur og sætti sig að lokum við það að peningurinn sem hann hafði í buddunni sinni væri að mestu leyti frá okkur og við fengum fimmtíukall í afgang þar sem við ældum hvorki í bílinn né eyðilögðum eitthvað.
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:23 |
föstudagur, febrúar 27, 2004
Það er kominn vikuendi og við vikuenda er við hæfi að b ...... fokk ég á eftir að fara í ríkið
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:11 |
Skrumskæld, stytt, hnitmiðuð og breytt bein tilvísun í Davíð Oddson. „Fyrst kolkrabbinn er dauður þá eru peningar verkfæri djöfulsins og fjölmiðlar eiga að vera í eigu góða fólksins í flokknum“
Skrifað af Jon Minn klukkan 15:03 |
fimmtudagur, febrúar 26, 2004
Eldheitar íþróttafréttir: Einar Hólmgeirsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Grosswallstadt í þýsku deildinni. Í samtali íþróttadeildarinnar við Einar Hólmgeirson segir hann að kappinn sér líði ágætlega og um leið og nýji BMW-inn rennur í hlað mun formlega vera gengið frá samningnum.
Skrifað af Jon Minn klukkan 22:22 |
Queen er mest besta hljómsveit í heimi. Ég fjárfestaði einmitt í Digital Versatile Disk úm deginn. Svo horfaði Minns á þessa LIVE AT WEMBLEY STADIUM collection og vá VÁ *VÁ* ég meina GOD DAMN. Minns ætlar að fjárfusta í alveg auns fötum og kappinn var í.
Skrifað af Jon Minn klukkan 00:26 |
Schumacher slær brautarmetið á Imola brautinni ... Formúlan er að byrja ... Ferrari greinilega með besta bílinn ... Þetta verður rosalegt ... aaa gaman að upplifa þennan tíma þar sem Ferrari og Schumacher rústa öllum öðrum ... Something to write about when I am old.
Skrifað af Jon Minn klukkan 00:11 |
miðvikudagur, febrúar 25, 2004
ÉG hef ekki mætt í skólann í tvær vikur og er farið að líða soldið illa... á eftir að velja mér ritgerðarverkefni og þarf að skila uppkasti að þremur stórum ritgerðum ASAP. Fyrir utan allan lesturinn og önnur störf sem fylgja í þessari merku stofnun Helvítis Ísingerði (HÍ). Svo skrifaði Atli í gestabókina og var að forvitnast um Minns, það veitti mér kraft til að áætla að mæta... takk Atli.
Ég hef verið gjörsamlega að drukkna í vinnunni... og hef þurft að sinna henni því þaðan koma víst peningarnir...
Skrifað af Jon Minn klukkan 15:51 |
Húmor punktur is búið að tengja á Íranann Adenit vin minn. Hann er orðinn frægur á Íslandi...
Skrifað af Jon Minn klukkan 15:44 |
Ég fékk ekkert saltkjöt eða baunir í gær. Bara pylsu í sjoppu. Svona er þetta þegar maður fær ekki hlutina uppí höndurnar þá verður ekki neitt úr neinu. Reyndar langaði mig ekki að sjóða salta kjötið og örbylgjuofna súpuna sem étið var fyrir helgi og afgangarnir skildir eftir handa mér, eða ruslinu reyndar. Miklu einfaldara að fá sér pylsu með öllu og kóladrykk með.
Skrifað af Jon Minn klukkan 11:41 |
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
Ég var í bæjarvinnunni, hvað ætli það hafi ekki verið 1997, og var ósköp latur sláni. Verkstjórinn var fönguleg eldri stúlka sem hét Rósa(og heitir vonandi enn).
Eftir tvo daga í vinnunni var ljóst að ég var mjög latur við vinnu og þurfti Rósa þessi stanslaust að ýta við mér. Annars var hún mjög góður yfirmaður og geinilega töff, hún hafði fyrr um veturinn komið fram í hinum geysivinsæla unglingaþætti „Ó“ ásamt kærastanum sínum og talað opinskátt um hvernig það er að VERA SAMAN en þau áttu heima á Egilsstöðum.
Í vinnuhópnum gekk allt sinn vanagang, allir að kynnast og allt voða rólegt. Við unnum uppí Árbænum þarna uppí Ásunum fyrir ofan Fylkisvöllinn. Þá gerði ég soldið sem hefur étið mig að innan í öll þessi ár.
Í einni peppræðunni hennar Rósu, sem hún var orðinn frekar þreytt á mínum síkjaftandi letingja, kallaði ég hana „tík“..... ó hve ég skammast mín, því hún var það alls ekki og átti þetta svo ekki skilið ... það sem eftir lifið dags vann ég eins og þeir gerðu á bómullarekrunum hér í gamla daga.
Ég var harðákveðinn í því að vera geipilega duglegur fyrst ég væri svona mikill hálviti. Á leiðinni heim í ljóta bílnum fann ég á henni að hún var sár. Ég var ákveðin að biðja hana afsökunar daginn eftir.
En þegar ég kom heim tók stóra systir á móti mér með skilaboð, ég hafði fengið símhringingu frá manni sem vildi ráða mig í aðra vinnu. Ég var tvístígandi, enda átti ég að mæta daginn eftir í nýju vinnuna og gæti því ekki beðið Rósu afsökunar.
Ég mætti í þessa nýju vinnu frekar óöruggur yfir því að hafa sýnt lélegan karakter. Ég var latur í nýju vinnunni fyrsta daginn en það var aðallega af því að nýji yfirmaðurinn sagði mér eiginlega ekki hvað ég ætti að gera. Svo fannst mér eins og ég væri að bregðast Rósu. Ég náði aldrei að biðjast afsökunar.
Þetta lítur kannski ekki út fyrir að vera merkilegt en mér finnst það ....... svo Rósa ef þú ert þarna - Fyrirgefðu ég kallaði þig tík!
Skrifað af Jon Minn klukkan 23:27 |