þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Oft efast ég stórlega um eigin geðheilsu! Tala betur um það seinna...

Djöfull væri gaman að vera Forseti Evrópu!!!

Vá hvað síðan hjá dvergnum Bó er orðin flott. Mig langar að fara að breyta minni, fyrst sumarið er að koma! Sumarið að koma... ég þarf endilega að fara að fara að læra við tækifæri... og ná í hjólið mitt sem systir mín fékk lánað fyrir nokkrum árum og er ennþá í hjólageymslunni í kjallaranum á gömlu íbúðarblokkinni hennar á stúdentagörðunum sem hún er löngu flutt út úr. Annars er það heldur of lítið fyrir mig núna, eða nei ég notaði það nú fyrir 2 árum í einn stuttan hjólreiðatúr og ef ég man rétt var það hmm jú of lítið....Er ekki hægt að kaupa stærri hjól? Nei það er víst ekki hægt..... helvítis Dvergar!

mánudagur, febrúar 23, 2004

Þegar ég hugsa um bollur þá hugsa ég um þegar ég var lítill strákur í úthverfinu mínu á bolludag með snúð eða samloku í nestisboxinu í staðin fyrir Bollu eins og allir hinir krakkarnir. VEGNA ÞESS mér fannst bollur ógeðslegar ÓGEÐSLEGAR og mig verkjaði við tilhugsuninni af því að éta þennan viðbjóð.

Ég fæ alltaf update af morðmálsrannsókn beint í æð en kæri mig ekki um að blogga því á netið sökum ...YOU KNOW WHY!

Já og mér fannst borgarinn ekkert spes - eiginlega bara vondur - en franskarnar voru góðar - feitar og fitandi.

Fór á Burger King áðan með Leoni. Þegar við komum að er röð og fokkit við bíðum ekki í neinni röð... svo eftir soldla bið í röðinni kemur loks að okkur. Mér líst vel á að fá mér þarna máltíð og sáttur gef ég það til kynna... „Viltu ost með?“ auðvitað vill ég ost hvað meinaru ost, grænmeti og sósu(ásamt kjöti og brauði utanum) eins og vera ber… „þá eru það 750 kall [í staðin fyrir 699 eins og þeir auglýsa]“ og þá var mér nóg boðið. Nei, veistu afgreiðsludama (sem langar örugglega að verða vaktstjóri á næsta Burger King stað sem opnar), ég ætla að sleppa ostinum til að mótmæla þessu ranglæti. Á ég kannski að borga fyrir grænmetið líka? Og koma með bónus hamborgara til að skella á grillið hjá þér?

Svívirða. Leon leyst nú ekkert á Minns og bað mig að hætta að öskra og froðufella. Svo fékk ég mér kók og býsnaðist yfir því að fyrst fengi maður sér klaka svo gos og síðan þyfti maður að troðast í gegnum þvöguna aftur til að fá sér lok og rör!

Ég er semsagt búinn að finna mér nýtt baráttumál. Meira um það við tækifæri…

Ég er góður!

Ég er þægilegur í umgengni!

Ég vil öllum vel!

Ég er gull af manni!

Mér þykir sjálfshól það ómerkilegasta sem til er!

Og og og ég þyki fyndinn!

HÁTÍÐLEGUR

sunnudagur, febrúar 22, 2004

Nýjar myndir helgarinnar komnar og allt að gerast nema kannski ég... ég er ekki að gerast... ég er meira bara búinn að skíta allt út í kringum mig og nenni ekki að taka til... svona er þetta þegar yfirmenn heimilishaldsins fara til útlanda og ætlast til að 23 ára sonurinn sé orðinn að manni og geti séð um sig sjálfur... en nú er ég auðvitað bara að fíflast því eins og ÞÚ veist er ég með afbrigðum snyrtilegur og það sést á frágangi heimilissins...

Ég og Brúskur(Páfagaukurinn) tökum á móti gestum í bollukaffi frá klukkan 16:00 til 19:00 í dag, sunnudag. Boðið verður uppá vatnsdeigsbollur og léttmjólk... með öllum kræsingum. Ekki vera feimin/nn því þannig féllu heimsveldin.


#
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

RÚST!!!

föstudagur, febrúar 20, 2004

Nýjustu fréttir af morðmálinu frá Neskaupsstað. Það er búið að handtaka mann. Jón Minn alltaf fyrstur með fréttirnar!!! Lífvörðurinn sem var í DV um daginn...

Hann var leiddur út í járnum hérna úr skrifstofuhúsnæðinu rétt áðan. Hann tengist vinnunni ekki á nokkurn hátt. Klukkan er 13:40

Þegar ég vaknaði í morgun var ákveðin værð yfir öllu ... eins og það væri komið sumar ... sólin skein og ég var ekki þreyttur þegar ég reif mig upp klukkan 10, þrátt fyrir erfiðan fund kvöldið áður. Mér leið eitthvað svo vel. Ég vakti páfagaukinn minn, Brúsk svo söng hann og blístraði af kæti fyrir mig, Sólkóngnum sjálfum hefði það sæmandi skemmtun.

Það er ekki furða mér líði svona vel... Í DAG ER GÓÐUR DAGUR, Í DAG LÍÐUR MÉR VEL.... ÁRSHÁTÍÐIN ER Í KVÖLD.

Þrefalt Húrra.

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Get with the program... a perfect world is no fun!!!

KB banki skilaði 7,5 milljörðum í hagnað. Flott. Helmingur hagnaðar kemur erlendis frá. Flott. Borgaður verður þriggja krónu arður á hlut, það þýðir nokkra þúsundkalla fyrir mig. Flott.

Árshátíð KGRP á föstudaginn. Nánari upplýsingar á www.kgrp.blogspot.com.

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Búhú þá er Beyoncé Knowles orðin trúlofuð kerling... Ég grét ... en hverjum er svosum ekki sama ... hún mun alltaf skipa sérstakann stað í hjarta mínu........

Þá er bara að finna aðra hmmmm... female (samheiti yfir konveru, kónu, stúlkukind, Kleópötru, hornkerlingu, ég var ung gefinn Njáli vælukjóa, kvenkynsómaga, töskubera, sjálfstraustshamlað/ofvirkt fímeil, [eftir nokkra... falleg] konu og síðast en ekki síst hálfgerða manneskju) til að halda uppá ... af einskærri þráhyggju*ÞRÁHYGGJU* núna??? Æi fokkit hún BK verður alltaf mín. Þessi helvítis Jay Z má nú bara éta það sem úti frýs og ég ætla rétt að vona hann fái ekki að gefa út afbökun sína á Hvítu plötunni.

Hún var næstum búin að missa brjóstið út hjá sér á Grammy en það munaði smá og ég var ánægður fyrir hennar hönd að það gerðist ekki og Beyoncé getur haldið áfram baráttunni gegn alnæmi, án þess hauslaust fólk muni alltaf eftir þessum atburð.

Lengi lifi Beyoncé Knowles, drottning heimsins og ljós lífsins!!!

Pixies að byrja aftur………….. gott mál

Litla systir er úti í Osló í bekkjarferð, eftir mikla fjáröflun um Árbæjarhverfið. Í fyrradag réðst gengi á 20 manna hópinn og einhverjir strákar fengu sár og mör eftir barsmíðar helvítis NOJARANNA, en ekkert alvarlegt. Þau sluppu með því að hlaupa í sporvagn en gengið elti talsverða stund. Mamma reyndi að brýna fyrir Auði litlu að passa sig og vera alltaf með hópnum og kennaranum en hún sagði bara „mamma við stelpurnar þurfum að fara í mallið og versla, við nennum ekkert að hafa strákana og kennarann með í það!“ Svo fór hún víst á skíði og hegðaði sér vel.