mánudagur, mars 21, 2005

Læstur úti

Kom heim í dag eftir vinnu og hvað ... nema hvað ég gleymdi að setja nýja lykilinn að nýju hurðinni á lyklakippuna og var því læstur úti. Þurfti að bíða á ganginum eins og í gamla daga þegar svona gerðist. Sat í tröppunum og las Hagkaupsbækling í tuttugu mínútur - held ég fái mér bikini!