laugardagur, nóvember 29, 2003

föstudagur, nóvember 28, 2003

Og ég sem ætlaði að vera svo jákvæður, fór meiraðsegja áðan að hlusta á FM957 eins og hver annar hauslaus. Reyndar kom það mér á óvart hversu óþægilega þægilegt er að hlusta á þessa stöð... hún hefur alltaf verið í hinu liðinu hvað mig snertir... mér líður alltaf eins og ég sé að brjóta einhverja reglu þegar ég hlusta á (þó ekki sé nema heilan tón). En maður bara slekkur á hausnum, hættir að hugsa og lætur sig líða inní heim þar sem sílíkon brjóst og stingandimagavöðvar eru staðalbúnaður og það að vera á móti er álitinn vera bara eitthvað blablabla. Viti menn þá er þetta bara svona.... já ekkert svo slæmt EN maður verður að passa sig því eins og ég skrifaði áðan þá þarf maður að slökkva á hausnum á sér. Það er aldrei gott að hætta að hugsa... varðandi magavöðvana og gervibrjóstin (sem reyndar fær mig til að hugsa um af hverju fólk er svona opið fyrir því að stúlkukindur útum allt eigi rafknúin gervityppi og noti þau óspart til að fullnægja frumstæðum þörfum en en en þegar strákur á gervipíku úr fínasta plastflaueli eða hvað sem notað er er er er hann álitinn vera algjörlega óður (reyndar hef ég aldrei komist í þessa umræðu [við annann en innanfullan heilabörkinn á mér] en ég svona reikna mér til um að þetta yrði niðurstaðan)) þá verð ég að segja að þeir eru bara allt í lagi....... allavega magavöðvarnir veit ekki með gervibrjóstin.... væri ekki hægt að genabreyta fólki bara þannig að öll fita safnaðist saman í brjóstunum á kvenkyns kynlífsmaskínum í staðin fyrir að skapa slappa handleggi og kallbrjóst???

Magga benti okkur á tengil á gaur sem klárar Super Mario Bros 3 á 11 mín endilega kíkið á hann...

Þessi er helvíti góður kannski of góður blikk blikk... ég man þegar ég kláraði leikinn þá náði ég alltaf í p vænginn líka til að sleppa við öll þessi hopp í seinna svarta borðinu og svo synti ég alltaf í fyrra svarta borðinu í vatninu fyrir neðan átökin... góð leið hjá honum að ná svona í aukalífið í lokakastalanum og í gegnum vegginn ég fór alltaf leiðina niður og upp aftur á þessum stað. Þvílíkur staður til að drepa lokakallinn alveg upp við hann... hann getur ekki hreyft sig... bravó

Nei nei nei hvað er fólk að spá? Þegar það lætur bara hringja einu sinni. Eins og það ætlist til þess að síminn sé einhversstaðar utan hljóðfæris og maður sjái 1 missed call á símanum allt í einu og hugsi með sér ohh hvað þessi var góður að reyna að hringja í mig... best ég hringi í hann til baka blessaðan kallinn/blessunina.............. neineinei það sem ég hugsa er GYÐINGUR, djöfulsins nískupúki og hauslaus mannfjandi...

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Þegar ég fór í ræktina í dag rann upp fyrir mér að núna um mánaðarmótin rennur kortið út... hmm næst er World Class aldrei að vita nema það komi betur út varðandi hreinlætið. Annars er Sporthúsið alltaf að bæta sig en lengi má gott batna málið er bara arkitektúrinn á pleisinu. En ég er samt búinn að ákveða það núna að hætta að kvarta og kveina og beina sjónum mínum og kröftum að því sem gott er eins og Hnakkinn gerir.

Skonrokk komið á netið!!!

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Svo vantar mig svona 04 límmiða til að láta á númerið á bílnum hjá mér? Veit einhver hvar ég get fengið svoleiðis???

Swindon gerði jafntefli við qpr 1-1 í síðasta leik, Sam Parkin skoraði...

Eins og alltaf var ég með myndavélina mína í töskunni í gær... vegna þess að það er aldrei að vita hvenær eitthvað myndefni leynist í nágrenni mínu...... í gær sá ég merkilegan hlut sem ég ætlaði að gera mikið úr en viti menn... gleymdi ég ekki batteríinu í hleðslu heima.... svo engar myndir gat ég tekið en nú hef ég lært af reynslunni og mun passa þetta.

http://www.picturetrail.com í tómu rugli...

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

Svo er ég líka Fight Club

Það er svo gaman að svona dóti... Maður kemur alltaf svo vel út...

Carefree
You're just the happy go-lucky type. You might have
your pet peeves, but other than that, you're
mainly calm. Blending in with your
surroundings, you're the type of person who
everyone likes. Usually it's you who cracks
jokes at social gatherings - after all,
laughter is the best medicine. Sometimes you
pretend to be stupid, but in all actuality, you
could be the next Einstein.


What Type of Soul Do You Have ?
brought to you by Quizilla

En þegar ég kom útí þennan yndislega bíl minn þá gerðist þetta…
Ég opnaði bílinn og þá hrundi snjórinn inn á sætið
og fokk þá varð ég pirraður
mokaði hann út
svo geymi ég flísvettlinga í bílnum
svo mér var kalt þegar ég fór í þá kalda
svo skóf ég
eftir að hafa startað bílnum og
þegar ég ætlaði að leggja af stað fattaði ég að ég hafði ekki læst uppi
svo ég þurfti að fara útúr bílnum og inn í stigagang og læsa
en þá
komst ég ekki útúr bílnum
því að samlæsingin var frosin og virkaði ekki
svo ég þurfti að fara út farþegamegin
skondin sjón
ég hefði átt að taka mynd
svo komst ég ekki inní bílinn þegar ég kom til baka því að það var einhvernveginn allt frosið
svo ég þurftir að hjakka á læsingunni og rífa bílinn upp
ég hafði lagt á miðjum veginum svo það voru 2 bílar stopp fyrir aftan mig og biðu eftir að ég kæmist í bílinn
þegar ég loks komst inn
startaði helvítis bíllinn ekki
fyrr en eftir dágóða stund
svo var svo mikill snjór að ég rétt dreif af stað
og hálkan maður fokk þó ég sé á nagladekkjum
þá rann ég talsvert til
svo að þrátt fyrir frábæran morgun náði bíllinn að eyðileggja allt
en ég er glaður núna

Svo fór ég náttúrulega í bað fyrst stemmingin var svona. Passaði bara að vatnið væri nógu heitt og gvöð það var svo afslappandi. Ég ætlaði að fá mér sápu þegar ég tók eftir því að einhver hagkvæmur hafði vatnsblandað hana til að drýgja hana, ég hata svoleiðis þá fær maður kaltvatn yfir allan lófann í staðin fyrir þetta mjúka krem. Síðan sofnaði ég næstum meðan ég beið með hárnæringuna í hárinu.

Núna get ég varla beðið eftir að geta skafið bílinn minn, ætla að klæða mig vel og taka langann tíma í það. Láta bílinn ganga á meðan svo hann verði heitur þegar ég tek af stað...

Aaaa hvað það var gaman að vakna upp eins og gamalmenni klukkan 8:24 bara af því ég þurfti að pissa. Ég staulaðist inná baðherbergi og skoðaði mig í speglinum eftir losun. Á leiðinni til baka hugsaði ég með mér... „ég er þyrstur“ ... svo ég fór inní eldhús þar sem pabbi var að býsnast yfir Sigurði Einarssyni en líka helvítinu honum Davíð, meðan hann las blöðin. Unaðsleg kaffilykt útum allt og hjónabandssæla á borðinu. Ég fékk mér vatnsglas og sá allan snjóinn hugsaði þá vá hvað það væri gaman að labba úti núna í góðri úlpu, eins og ég komst seinna að að Bó hafði verið að gera á þessum tíma. Eftir vatnsglasið ákvað ég að sofa lengur og snerti því ekki á hjónabandssælunni. En í staðinn fyrir að sofna lá ég bara og lét mér líða vel undir sænginni sáttur við að þurfa ekki á fætur. Svo kveikti ég á Rás 2 og hlustaði á útvarpsmanninn Gest tala við einhvern sem hafði fest bílinn sinn á Þorskafjarðarheiði og björgunarsveitarmenn í Króksfjarðarnesi hefðu dregið hann út svo hann komst á fund með bændum á Hólmavík að kanna internettenginar þeirra. Algjör snilldarmorgunn svo ákvað ég að stilla á Skonrokk þar sem Birgitta var í viðtali við Zombie og ég held bara að ég hafi ekki verið alveg vaknaður því ég fékk hausverk á að hlusta á þau tala (kannski af ég þurfti að hugsa á meðan) svo ég skipti bara aftur yfir á Rás 2 og lét mér líða vel yfir lögum um ástina og blómin. Eftir einn og hálfan tíma af svefnvökuhlustun á útvarpið fór ég að hugsa um þessa hjónabandssælu sem beið mín. Ég fór aftur fram, skellti mér í inniskóna, Svarthöfðabuxurnar, bol og peysu. Byrjaði að lesa blöðin eins og ég geri alltaf á meðan ég borðaði Cheerios með léttmjólk og Egils eplaþykkni blandaða í vatn í stórt kókglas, ég keypti tylft af þeim á 390 í Bónus hér um daginn. Muldi sæluna og renndi yfir fréttirnar á milli þess sem ég horfði á snjóin úti og reyndi að vakna almennilega... Þessi morgun er bara sá besti í þessum flokki.

mánudagur, nóvember 24, 2003

Gaman þegar snjóar svona, maður getur byggt snjóhús og farið í stríð við einhvern. Hnoðað 100 snjóbolta til að eiga í birgðastöðinni. Farið í sendiferðir í önnur snjóhús og komið af stað stríði. Leikið sér úti þangað til puttarnir verða hvítir... ef maður væri 10 ára.

Andri ætlaru að draga það framyfir próf að laga bílinn minn?

Á föstudeginum var fundur í sælkeraklúbbnum sem varð að djammi áður en maður gat ákveðið að hafa bílinn ekki á Lækjartorgi. Enda vaknaði ég nokkrum mínútum eftir að ég kom heim, tók strætó niðrí bæ og bjargaði Mözdunni frá skítugum miðbæjarrottum og stöðumælavörðum. Keypti mér reyndar verstu pylsu sem gerð hefur verið, í strætósjoppunni, ég náði bara einum bita sem ég reyndar skilaði á sorpniðurgrafelsið á Álfsnesi eða hvar sem þessir niðurgröfnu geymslur eru!

Afmæli um helgina hjá Elsu uppí einu úthverfa borgarinnar. Vægast sagt mjög gaman, svona eiga afmæli að vera... aldrei dauður punktur... Verðlaunaafhendingar og aftur verðlaunaafhendingar. Allir fengu númer og mitt var „dregið“ út úr pottinum svo ég fékk að taka þátt í leik sem Bára vann mig í á sannfærandi hátt. Annars var svo mikið í gangi að myndirnar skulu fá að tala sínu máli. Ég þakka kærlega fyrir þessa frábæru skemmtun. Svo var farið í bæinn á alla helstu staðinu og töluðum við okkur inn á staði sem löngu var búið að loka.. Niðrí kvos hitti ég hana Eddu það var gaman hún var hress. Á einu augnabliki sýndi ég örtakta sem ekki samræmast fyrirsætuútliti mínu og veraldarvönum klæðnaði en þá tók ég bara uppúr vasanum tyggjó og allt varð slétt. K**** F***** C****** borðað daginn eftir, til að tryggja vel smurðar æðar fyrir komandi átök. Einnig var túristinn tekinn á nýtt plan.