Stuðlar og höfuðstafir eru réttir í fyrstu 4 línum kvæðisins frá í gær. Ég planaði það ekki.
föstudagur, maí 30, 2003
Báðir móðurbræður mínir bóndinn Eiríkur og kranamaðurinn Gunnþór eru báðir nauðasköllóttir.
Skrifað af Jon Minn klukkan 21:11 |
Steinunn uppáhaldsfrænka var að útskrifast í dag fékk svaka flott úr prófunum, miðað við mig alla-ena. Til hamingju með áfangann, hamingja hamingja hamingja hamingja.
Ég komst að því að fegurðardrottningin sem slefaði yfir ásjónu minni þegar ég lét snoða mig var Tinna Alavez, ég er bara nokk sáttur verst að ég mun aldrei sjá hana aftur (því ekki ætla ég að elta hana uppi hún veit vel af þesari síðu og þar af leiðandi númerið mitt 695 4236), og við sem myndum eignast svo falleg börn Bömmer.
Ég er annars helvíti góður söngvari get sungið HELP með Bítlunum nærri án þess að þurfa að muldra, með sterkri karlmannslegri röddu. Svo sterkri að ég þarf að halda aftur af mér svo ekki taki undir í blokkinni.
Aaaaaah ég held bara að ég sé að fá skalla.
Skrifað af Jon Minn klukkan 21:10 |
fimmtudagur, maí 29, 2003
Úti er sumar og sól
Fuglar með söng og gól
Einstaka fantur og fól
Þegar farnir á ról
Ég stunda mitt dól
Fer uppá hól
Nota mín tól
Sting þar niður pól
En þrátt fyrir byggt ból
Mér þvímiður kól
Ætli nú séu jól?
Skrifað af Jon Minn klukkan 16:34 |
miðvikudagur, maí 28, 2003
Bærilegt, frá miðjum janúar. 232 sinnum á mánuði 7 tölvur á dag, þar af er ég með svona 3, svo 4 gestir á hverjum einasta degi. Ég er glaður, ofsaglaður.
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:51 |
Að sjálfsögðu er Ferrari líka eitt af mínum liðum en ég byrjaði ekki að halda með því fyrr en sjónvarpsútsendingar byrjuðu.
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:23 |
mánudagur, maí 26, 2003
Fylkir í Íslenska fótboltanum
Swindon í Enska
Köln í Þýska
Roma í Ítalska
Real Madrid í Spænska
New York Knicks í NBA
Skrifað af Jon Minn klukkan 20:31 |
föstudagur, maí 23, 2003
fimmtudagur, maí 22, 2003
Það er tengill inná tilverunni, þar sem verið er að fiska upp að maður hugsi gulrót og sagt að 98% heimsins hugsi um gulrót en ég hugsaði um banana, ég held að þetta sér magnað eða einskisvert.
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:27 |
Svarið við gátunni sem ég setti inn fyrir löngu síðan er: Ekki sá sem er einn í klefa, ekki sá sem er fremstur, ekki sá sem er aftastur og úr því hann þegir þá veit sá í miðjunni hvernig húfu hann er með á litinn, ekki sama og sá fremsti.
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:24 |
Loksins get ég farið að versla við Írak. Loksins get ég framkvæmt draum minn um fisk fyrir olíu. Loksins er komið frelsi á viðskipti heimsins. Aaah nei það þarf leyfi frá Bandaríkjunum til að versla við Íraka. Bömmer, ég sem var farinn að hlakka svo til.
Skrifað af Jon Minn klukkan 15:45 |
miðvikudagur, maí 21, 2003
Litla systir er farinn að færa sig uppá skaftið, hún var á msn áðan og sagði að það væru allir heima nema ég og það væri gott ég spurði af hverju ,bara við erum að halda uppá vikulegan fögnuð yfir að þú sért ekki hér, sagði hún hvers konar fjölskyldumeðlimur er þetta?
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:47 |
Það er að segja alvöru ráðherra, landbúnaðarráðuneyti er ekki alvöru.
Skrifað af Jon Minn klukkan 18:23 |