Allavega nokkurnvegin byrjaður að blogga
þriðjudagur, desember 19, 2006
Nú er kominn tími á jólagjafir, þá helst handa Bryndísi.
Hafði hugsað mér að gefa henni eitthvað sem kostar á við tvenn mánaðarlaun, glansblað sagði mér það.
Annars er ég alveg tómur og 5 dagar til jóla....
Skrifað af Jon Minn klukkan 10:46 |
Flutti lögheimilið mitt 22. nóv niðrí Hliðar heim til minnar heittelskuðu Bryndísar.
Hef í raun haldið mig hér öllum stundum síðan í sumar.
Tók með mér nokkra húsmuni.
1. sjónvarpsborð
2. Jónatæki
3. 3 innkaupapoka af geisladiskum og dvd diskum
4. fullt af bókum
5. nokkur stk föt
6. fullt af öðru dóti
Loksins sér maður hvað rafmagnið kostar, um 1300 kr. á mánuði. Þetta vissi ég ekki áður en ég flutti.
Skrifað af Jon Minn klukkan 10:42 |
Rosalega er langt síðan ég bloggaði, veit ekkert hvernig maður gerir þetta lengur.
Þess vegna ákvað ég að skrifa bara helling til að koma mér í gírinn, það er líka svo miklu auðveldara að koma með 1 góða færslu eftir að hafa ræskt sig á lyklaborðinu nokkrum sinnum.
Skrifað af Jon Minn klukkan 10:41 |
fimmtudagur, ágúst 10, 2006
Halló
Ert þú strákur eða stelpa?
Hvar er næsti kebab staður?
Eigum við ekki bara að vera vinir?
Farðu frá Dvergur!
aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur
Skrifað af Jon Minn klukkan 22:54 |
þriðjudagur, júlí 25, 2006
þriðjudagur, júní 20, 2006
News Flash
Flestar ef ekki allar heimsóknir á blogg "Jón Minn" koma frá Google. Helsta ástæða þess er sú stefna sem mörkuð var í upphafi að skirfa ætíð flókin og löng orð rétt og heilt yfir. Leitarorð eins og Rocco Silfredi, Tinna Alavis, Einar Hólmgeirsson, London Phonebook og fleiri almenn skila mestu.
Þess utan er ég náttlega hættur að skirfa og lesendu r eru hættir að fara blogghringi.
En þið sem lesið - Kommentið - ég elska svoleiðis..,- Jafnvel þó það sé ekki meira en "Ég elska þig Jón Minn!"
Skrifað af Jon Minn klukkan 04:04 |
mánudagur, júní 05, 2006
Ég er einn... í eyðimörk... með ekkert að drekka... nema olíu í tunnu....
EKKERT EKKERT EKKERT EKKERT FYLLERÍ Í KVÖLD
Skrifað af Jon Minn klukkan 14:45 |
Ég finn engar fréttir á BBC um að Eiður vinur okkar sé eitthvað númer í skiptimarkaðnum. Kannski eru íslenskir fjölmiðlamenn svo naskir á að leita uppi fréttir um íslendinga www.newsonicelanders.com.
Af hverju finn ég ekkert á virtum fjölmiðlasíðum? Eins og þegar einhver kona Jóna var að reyna að selja mér NEw SKin, ég reyndi að finna óháðu ráðgjafanefndina hennar á vefnum, utan newskin.com en ekkert gekk. Svo ég sagði henni að ég fyndi ekkert um meint meðmæli hennar frá þriðja aðila um ungdóms og hreinleikaafurðina. Hún varð sár, spurði hvort ég treysti henni ekki, ég sagðist auðvitað ekki treysta henni. Samt keypti ég aftershave, það var ótrúlega gott en ekkert smá dýrt.
Skrifað af Jon Minn klukkan 14:04 |
föstudagur, maí 19, 2006
Silvía Nótt er lang töffuðust. Hinir vita ekkert hvað er hipp og kúl.
Austur Evrópa þarf bara að fá sína eigin keppni.
Púið í Grikklandi tekur út alla þá samúð sem ég hafði fyrir fattlausum Evrónördum gagnvart Silvíu. Hún hefði samt mátt kanna það að elska fólkið fyrst yfirþyrmandi, svo böggast yfir því sem miður færi. Sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem kann ekki að gera grín að sjálfum sér.
Sjálfumglaðir Kommúnistar og börnin þeirra geta bara átt þessa keppni með húð og hári. Keppni í þroskaheftri tónlist er orðin staðreynd. Síðasta tilraun hæfileikafólks rann út í sandinn.
JF
Skrifað af Jon Minn klukkan 12:24 |
mánudagur, maí 08, 2006
Vandræðalegar Borgarstjórnarkosningar 2006.
Ég er kominn með framtíðarsýn sem kjósandi.
Höfuðborgarsvæðið skal hafa neðanjarðarlestarkerfi.
Lest númer 1 á að ná frá Háskólanum/Miðbænum undir Miklubraut uppá Vesturlandsveg. Lest númer 2 á að ná frá Kringlunni og að Leifstöð.
Lest númer 3 á að ná frá Mosfellsbæ undir Grafarvog/Endastöð Lestar 1/Árbæ/Breiðholt/Lindahverfi og að Smáralind með gatnamótum við Lest númer 2.
Svo væru risa bílastæði við hvert lestarstopp þar sem ég gæti lagt bílnum mínum. Einnig væru strætisvagnar sem gengju án afláts frá lestarstoppistöðunum stuttar leiðir þvert yfir teinana.
Þessar lestir væri hljóðlausar, þráðlaust internet, hljóðfráar og hvaðeina.
Verst að ég fæ ekki að ráða þessu strax, þarf víst að róa mig fyrst.
Skrifað af Jon Minn klukkan 23:55 |
sunnudagur, maí 07, 2006
Fór í flugukastnámskeið í KR heimilinu í morgun, mætti auðvitað hroka frá starfsmanni KR þegar ég labbaði inn. Hóf svo námskeiðið ásamt starfsfélögum mínum.
Snýst eiginlega um að sveifla línunni um í íþróttahúsi. Hefði aldrei trúað því hvað það væri vont að fá svona flugu í eyrað. Krækti einmitt nokkrum sinnum í eyrað, veiddi meiraðsegja í peysuna hjá manninum hinum megin í salnum, var með of langa línu.
Leiðbeinendurnir voru 2 eldri menn, einn sagði mér að halda með þeirri vinstri í línuna og hreyfa ekki höndina. Hinn sagði mér líka að hreyfa ekki höndina en vafði línuna um puttann. Svo kom hinn aftur og spurði hvort mig langaði að missa fingur og leysti vafninginn. Þeir leiðréttu stillinguna reglulega hjá mér.
Skrifað af Jon Minn klukkan 22:47 |
miðvikudagur, maí 03, 2006
Merkilegur tími, svipað og 11:11:11 11/11/11 verður.
Settist inn í vel bónaðan glænýjan bílinn minn í morgun, setti Ray Ban upp, stillti inn Sultan á iPod, þreifaði á leðrinu, bakkaði þangað til pípti á mig og ók á brott.
Áður fyrr: Náði ekki að opna ryðgaða hurðina að bílnum mínum, fór inn um gluggan afturí farþegamegin, startaði í annarri tilraun, stillti inn útvarpstöð, fann bensínstöðvagleraugun og ók á brot.
Megin boðskapurinn er að rútínan er alltaf eins, þetta er bara spurning um hvort smáatriðin verða skemmtileg eða mont.
En núna er verið að reka mig frá tölvunni, það er vigtigt eins og sagt er... Shake it up shake it shake it nooooow... dududududu yeeeyayeeayyehh
Skrifað af Jon Minn klukkan 21:22 |
mánudagur, maí 01, 2006
Uppsafnaður forði ljósmynda vetrarins á leiðinni á myndasíðu Jóns Míns... Það eina sem mig vantar er 90 megabite ftp svæði fyrir albúmið. Hver er til? Skal splæsa í harðan disk.
Við erum að tala um allir græða
Skrifað af Jon Minn klukkan 13:39 |
föstudagur, apríl 28, 2006
föstudagur, apríl 21, 2006
Ég er í stuði. Stórt blogg í vændum.
1. Málfar í sjoppum
2. Nýjir bílar og drulla
3. Nám og vinna
4. Fátækt og sparsemi orðin kúl?
5. Litróf húðarinnar í kulda og trekk
6. Gengi erlendra gjaldmiðla óháð íslensku krónunni
7. MSN vinir sem þú ert hættur að tala við í alvörunni
8. Meðalgreind og Post-it miðar
Shitt mikið = hef þetta í stikkorðastíl
1. Ég ætla að fá eina með öllu, bara í gömlu sjoppunum. Núna er maður á bensínstöð og setur sósuna sjálfur en er boðið að fá "Báða laukana"?!? whats up with það maður. Málfarslega vitlaust. Réttara væri að segja... "Viltu fá hráan, steiktan eða bæði?" Útrýmum þessari heimskulegu samtíma slettu.
2. Ég á glænýjan bíl og hann er drullugur, hvenær á maður að bóna og hvenær má maður þrífa massíft?
3. ömm
4. Steini vinur minn segir að nýjustu frasarnir séu "Ég á ekki aur" og "Ég er fátækur námsmaður"
5. Maður fölnar í skammdegi en getur samt litað sig með tækninni. Er það ásættanlegt?
6. Ætli sé mikið flökt milli Evru og Dollars?
7. Ég á fullt af msn vinum sem eru bara þarna á msn en aldrei yrði ég á þá lengur. Ætli það sé ekki mér að kenna, ég er orðinn svo asskoti þurr á manninn.
8.
Skrifað af Jon Minn klukkan 21:27 |
föstudagur, apríl 14, 2006
Loksins kominn á nýjan bíl.
Það eina sem vakti furðu mína eftir rúmlega mánaðarfjarveru var verðið á bensíni. Það er varla maður hafi efni á að fara ökuferð útfyrir árbæinn. En hvað er hægt að gera? Það verður einhver að græða. Ég fjárfesti í olíufyrirtæki um daginn og sé svo sannarlega ekki eftir því núna. Bráðum verður ráðist inn í Íran og þá verður allt brjálað og við náum loksins valdi á allri olíunni.
Þetta var nú leiðinlegt blogg.
Kannski ég endursýni bara gamalt blogg næstu mánuði...?!?
15. janúar 2003
Ég fór nefnilega í kvikmyndahús milli jóla og nýárs á hina mestu mynd um Hringadróttinssögu. Við byrjum í Smárabíó þar sem tilkynnt var að uppselt var á allar sýningar þá um daginn en í staðin fyrir að gefastu upp og fara heim keypti ég miða á sýningu niður í Regnbogabíó hóf síðan ferð mína þangað og jú það stóð heima miðinn gekk að húsinu og fékk ég og minn vinur aðgang inn. Alllangt var í sýningu svo ég ákvað að setjast í svotilgerða biðstofu með hörðum stólum og ókeypis rusl lesefni til að láta tímann líða en fyrr en varði hröðuðum við okkur inn í sal og ekki var það seinna vænna því allmörg sæti voru þá þegar í notkun en fengum við samt fín sæti rétt við miðju. Síðan tók við hálftíma bið eftir þar sem ekkert gerðist nema hversdagstal. Að vísu fylgdist maður með fólki raða sér í salinn sem var allur setin tuttugumínútum fyrir áætlaðan sýningartíma. Auglýsingar hófu sýningar fimm mínútur í sýningu og sýnishorn úr minna þekktum myndum fylgdu þar á eftir í tímaleysinu sem leið í eftirvæntingu eftir hinni einu mynd. Hún byrjaði og getur fólk lesið gagnrýni um hana útum allt ég hef ekki einbeitingu í að skýra frá henni. Þegar komið var að hléinu ákvað ég og mín vinstri hönd að moka fé úr vösum og fengum okkur sitthvorn nachos bakkann með heitri ostasósu sem áætlað var að éta áður en farið var í vaskaherbergið og skolað af höndunum skítinn. Eftir það biðum við í röð og fengum okkur risa popp og risa kók plús frostpinna og bingókúlur. Síðan var hafist handa við að rogast með draslið í sætin. En þá var köttur í bóli bjarnar og eitthvað par sat í sætum okkar og við bentum liðinu á að það sæti í sætunum okkar á meðan ég leit í kringum mig svona til að fullvissa mig um staðsetninguna jú þarna er gaurinn með skeggið og þarna er feita konan jú þetta eru sætin okkar. Nei, sagði gaurinn, ég sit hérna sagði hann, nú nei ég sat hérna og þetta er gosdallur vinar míns ha gosdallur vinar þíns helduru að það skipti einhverju máli skrækti ólétta unnustan í sætinu okkar, það eru gosdósir útum allt af hverju skildiru ekki eftir jakkan þinn, jakkann minn sagði ég og staulaðist til að segja að ég óttaðist að ef ég hefði gert það hefði hann farið sömu leið og sætið mitt. Þau stóðu á fætur og ég og Andri settumst í réttmæt sæti okkar en þetta var ekki búið því að þá hófu þau árás á sætin við hliðana og sögðu með hæðnistón hver á þennan gosdall meðan gaurinn tók upp lítið pappaglas og hélt uppí loft. Það er ekki hægt að skilja eftir popppoka í sæti og ætlast til að það sé í pant eða eru kannski númeruð sæti andskotarnir ykkar skrækti ólétta konan hátt. Þá var farið að hitna undir úlpunni minni og flestra í kringum okkur fólkið fyrir aftan hóf upp orðastórsókn gegn boðflennunum og reynt var að tala um fyrir þeim að þau gætu ekki bara sest í einhver sæti þau væru öll upptekinn, Upptekinn nei það er ekki ég keypti miða hingað inn og það skal finnast sæti fyrir mig, hljóðlaust urrg fannst innan úr brjósti gaursins. Fólk var farið að týnast aftur inn og settist markvisst í einhver sæti á meðan það hlustaði á þetta skringilega rifrildi. Þú verður bara að sitja fremst það eru laus sæti þar mannfýla sagði feita konan. Fremst við viljum ekki sitja fremst sögðu þau önug og ekki ánægð með hlutskipti sitt. Þá datt Andra sú snilldarhugmynd í ljós að benda fólkinu á að setjast þar sem þau sátu áðan. Áðan, öskraði ungi maðurinn um leið og hann áttaði sig á því að hann var kominn inn í miðja sýningu. Guð hvað hann skammaðist sín, byrjaði á því að vara óléttu konuna við því að segja eitt orð í viðbót til að fá sæti í salnum. Hún var alveg að fara að segja ég ætla bara að sitja hér og hananú. Maðurinn sem byrjaður var að skammast sína tautaði, ég bið forláts ég bið forláts ég bið forláts. á meðan hann fikraði sig í gegnum þvöguna og útúr salnum og skildi óléttu konuna eina eftir til að bjarga sér út. Þögn ríkti í salnum og gremja yfir þessari veruleika ásýnd svo nálægt heim Myndarinnar. En hún byrjaði aftur sem betur fer og allt fór vel að lokum fyrir okkur. Ekki tók ég eftir útliti fólksins svo ég mun örugglega ekki geta horft á það í margmenni og kannski er það vel. Endilega ef þið kannist við fólkið eða eruð söguhetjur sjálf vil ég þakka ykkur fyrir lífsreynsluna. Takk fyrir að lesa svona langt.
Skrifað af Jon Minn klukkan 15:17 |
fimmtudagur, apríl 13, 2006
Ég leysti lífsgátuna um daginn
Ég spurði Bókina með svörin hver væri tilgangur lífsins og opnaði þar sem stóð
ÞÚ VERÐUR AÐ VERA SVEIGJANLEGUR
Ætli þetta sé ekki bara rétt?
Skrifað af Jon Minn klukkan 20:04 |