miðvikudagur, mars 23, 2005

Freyju eggin eru best!

Var að smassa eitt stykki í vinnunni áðan, reyndar fór mest af namminu á gólfið - ég er svo harðhentur! En þá var bara náð í annað, enda eru páskaegg nauðsyn.

Svo vil ég benda á að ég er farinn að hlusta á FM957, því þar er einhverskonar tónelsk undirbylgja sem talar svo vel við undirmeðvitundina hjá mér.

Aðallega er það samt Árna Gunnari að þakka því hann var svo helvíti góður á grillinu í auglýsingunni að ég bara get ekki annað en hlustað. Takk Árni Gunnar!!!