föstudagur, janúar 30, 2004

Hann er nú eitthvað daufur þessi Swindon áhugamaður, hann hefur hvorki svarað emil mínum né símhringingum, heldur ekki skrautskrifuðum bréfum, svo reyndi ég að syngja hetjuljóð til hans í fyrrinótt í garðinum heima hjá honum en það virtist ekki bræða kolahjartað. Ætli ég verði ekki næst að tala við hann í dagsbirtu á fjölmennum stað. Reyndar held ég það sé ekki hægt þvi lögfræðingur hans sendi mér laganemasendisvein með orðsendingu um að halda mig í 500 metra fjarlægð frá viðkomandi næstu mánuði. Ég segi nú bara hvernig getum við haldið uppi aðdáendafélagi ef við megum ekki tala saman eins og fullorðið fólk.

kæri www.hi.is/~ erik.............svaraðu........ kallinu....... frá mér!!!! (hebbi)