þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Sem ég sit í Chiefinum... Þá var ég þess var, áðan, að kominn er vetur... fann jólasteikina í ofninum og rakettur í loftinu... reyndar fann ég lyktina, allsterka, af púðri... eins og af stórri tertu sem skotist hafði í logni... svo skipti ég úr fyrsta gír... og þá var aftur kominn vetur...

Horfþi á hreyfimynd í kvikmyndahúsi áðan, man ekki hvað hún heitir á upprunalega málinu en allavega heitir hún ÓBEITIN á því sem ég tala. HÚN VAR LÉLEG, hérna hefði ég getað sagt eitthvað meira en af hverju ætti ég að eyða mínu fingrum í að pikka einhverja stafi á lyklaborðið um ekki merkilegri hlut??? Ég öskraði í endann... FRAMHALD en það var kaldhæðni.

Braut Effelturnssleikjóinn... en það er svosum allt í lagi ég get hvort eð er ekki étið hann...