föstudagur, júlí 11, 2003

Eitt glas tvö glös þrjú glös Búmm
góði finndu leiðina sjálfur upp í rúm
fjögur glös fimm glös sex glös Súmm
finnur svimann koma kallinn Dúm, Dúm, Dúm.

Þúsund litlar sleggjur slá kljúfa þinn haus
leitaðu að flöskunni tappinn er jú laus.
Sjö glös átta glös níu glös takk
gömlu traustu vinirnir eru skíta pakk.

Þú ert snillingur í kjaftinum kannski er það list
kennir öllum öðrum um bömmerinn fyrst
tíu glös ellefu glös tólf glös mát
þú getur alltaf falið þig bakvið blakkát.

Lærðu flöskurnar að fela af stöðum er jú nóg
þú finnur inni á klósetti langþráða ró
þrettán glös fjórtán glös fimmtán glös tár
með góðum vilja áttu eftir tvö til þrjú ár.